Eiríkur Þorvaldsson var kallaður rauði af einfaldri ástæðu; hann var rauðhærður.
Eiríkur rauði var uppi á síðari hluta tíundu aldar og um 980 sigldi hann til lands í norðvestur frá Íslandi, settist þar að og nefndi Grænland.
Eiríkur átti þrjá syni með konu sinni Þjóðhildi, Leif, Þorvald og Þorstein. Leifur e...
Um Bjarmalandsferðir má lesa í fornsögum eins og Heimskringlu, Egils sögu og Örvar Odds sögu. Bjarmaland var við Gandvík þar sem nú heitir Hvítahaf, lengst norður í óbyggðum - séð frá blómlegum landbúnaðarhéröðum Noregs.
Þangað sóttu menn skinnavöru í greipar fjölkunnugra Finna (Bjarma) og er Gunnhildur kona E...
Á vefnum mun ekki vera til skrá eins og þú leitar að. En þar má þó finna grein eftir Eirík Rögnvaldsson prófessor frá 1986 með titlinum ,,Nokkur viðskeyti og tíðni þeirra”.
Fjallað er um viðskeyti í bók Eiríks Íslensk orðhlutafræði og allrækilega er gerð grein fyrir viðskeytum og notkun þeirra í ritverkinu Ísl...
Gunnbjarnarskerja er getið í samhljóða frásögnum Landnámabókar, Eiríks sögu rauða og Ólafs sögu Tryggvasonar þar sem lýst er fyrirætlun Eiríks rauða um að rannsaka lönd vestan við Ísland:
„… hann ætlaði að leita lands þess, er Gunnbjörn son Úlfs kráku sá, er hann rak vestur um Ísland, þá er hann fann Gunnbjarna...
Hugmyndin um konu sem þjóðartákn var víða á kreiki í Evrópu á 18. og 19. öld. Hún tengdist rómantísku stefnunni og hugmyndinni um móður jörð. Nefna má Germaníu hina þýsku, Marianne þá frönsku og Britanníu hina ensku.
Elsta hugmynd um konu sem tákn Íslands virðist koma fram hjá Eggert Ólafssyni á myndskreytingu ...
Stefán Karlsson handritafræðingur skrifaði árið 1989 ágæta grein sem hann nefndi „Tungan“. Hún birtist síðar í afmælisriti hans árið 2000 og er vísað í það hér. Þar gerði hann grein fyrir þróun tungumálsins, meðal annars sérhljóðakerfisins og skrifaði að á 13. öld hefði é (sem þá var einhljóð) fengið framburðinn í...
Síþreyta er sjúkdómur sem getur herjað á fólk af báðum kynjum og á öllum aldri, en er algengust meðal yngri kvenna. Stundum fylgir síþreyta í kjölfar flensu, lungnabólgu eða annarrar sýkingar en það er þó langt frá því að vera algilt. Sumir telja sjúkdóm í miðtaugakerfi orsök síþreytu en aðrir að sjúkdómurinn sé a...
Orðið skrælingi merkir villimaður eða ruddi. Það var áður fyrr notað í niðrandi merkingu um frumbyggja Grænlands og meginlands Ameríku, til að mynda í Grænlendinga sögu og Eiríks sögu rauða.
Í Íslenskri orðsifjabók er bent á tengsl orðsins skrælingi við karlkynsnafnorðið skrælingur sem er haft um 'rignd og skræ...
Nú á dögum er almennt talið að frummaðurinn sé upprunninn í Afríku fyrir um 150.000 árum. Þaðan breiddist mannkynið út í allar áttir á löngum tíma sem mælist í tugum árþúsunda. Fyrstu ummerkin um menn í Evrópu eru um 40 þúsund ára, og fyrir um það bil 15 þúsund árum fóru menn frá Asíu á landbrú til Alaska þar sem ...
Um ferðir norrænna manna til austurstrandar Ameríku eru til heimildir skrifaðar á 13. öld – Eiríks saga rauða og Grænlendinga saga – en höfundar þeirra töldu að leiðangrarnir sem sagt er frá hefðu verið skipulagðir af fyrstu kynslóð landnema á Grænlandi, það er á áratugunum eftir 980 eða svo.
Fornleifafræðileg ...
Spurningin í fullri lengd hljóðar svona:
Af hverju heitir Alþingi Alþingi en ekki Alþing? Þ.e. af hverju þessi -i ending?
Orðið þing beygðist til forna eins og í dag, í þágufalli þingi og í eignarfalli þings. Í fornnorrænni málfræði eftir Adolf Noreen er ekki minnst á hliðarmyndina þingi, aðeins þing. Í fornmá...
Leifur heppni var sonur Eiríks rauða sem er talinn einn af landnámsmönnum Íslands. Hann bjó á Eiríksstöðum í Haukadal í Dölum en hrökklaðist þaðan og var dæmdur í þrjú ár af landinu. Hann hóf landnám á Grænlandi árið 986.
Leifur er yfirleitt talinn vera íslenskur en samkvæmt Grænlendinga sögu fór hann í landale...
Hér er svarað eftirtöldum spurningum:
Hvar finn ég upplýsingar á netinu um forngripi eða söfn sem innihalda forngripi?
Getið þið sagt mér hvar á netinu ég get fundið egypska forngripi, eða bara einhverja forngripi (ekkert endilega egypska)?
Söfn og forngripir á netinu
Á netinu er að finna gríðarlegt...
Galdur felur í sér tilraunakennda þekkingarleit, sem er að hluta til byggð á eftirfarandi:
athugun á lögmálum og náttúrukröftum,trú mannsins á æðri máttarvöld,trú hans á eigin getu til þess að ná sambandi við og virkja innri sem ytri krafta. Sé grennslast fyrir um eðli galdraathafna má segja að þau feli í sér vi...
Orðtakið tvær grímur renna á einhvern ‛einhver er á báðum áttum, einhver efast um eitthvað’ þekktist þegar í fornu máli og kemur fram í vísu sem Grettir Ásmundarson á að hafa kveðið. Uppruninn er ekki ljós en Halldór Halldórsson nefnir þrjár skýringar í doktorsritgerð sinni Íslenzk orðtök (1954:205-207). Ein...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!